Innritun

Endurnýjun umsókna og innritun nýnema er alltaf opin hjá Tónstofunni. 

Umsókn um skólavist fyrir næsta vetur er hvorki bindandi af hálfu umsækjanda né af hálfu skólans. Aðstæður skólans breytast frá ári til árs, en á hverjum tíma er reynt að koma til móts við eins marga umsækjendur og mögulegt er. 
Foreldrar sækja um fyrir börn sín undir 18 ára aldri. Börn eru skráð hjá því foreldri sem þau hafa lögheimili hjá skv. þjóðskrá.
Sækja má um skólavist með eftirtöldum hætti:  - Á slóðinni https://tonviska.is/form/7/3cfbesd4ty7j2fb5/
- Á skrifstofu skólans að Stórhöfða 23. 
- Með því að fylla út þetta umsóknareyðublað og senda til skólans rafrænt eða í pósti. 
- Með því að senda tölvupóst til skólans tonsvj@mmedia.is með eftirfarandi upplýsingum. 

Nafn nemanda:
Kennitala:
Lögheimili:
Leikskóli/grunnskóli/framhaldsskóli:
Nöfn og kennitölur forráðamanna:
Heimasími(ar):
Farsímar forráðamanna:
Vinnusímar forráðamanna:
Netföng forráðamanna:
Upplýsingar um annað nám sem umsækjandi stundar:
Aðrar upplýsingar eða athugasemdir:

Vakin er athygli á því að ef tónlistarskólinn er utan lögheimilissveitarfélags, þarf að endurnýja umsóknir árlega hjá viðkomandi sveitarfélagi og staðfest samþykki þess að liggja fyrir áður en nemandi hefur eða heldur áfram námi í tónlistarskólanum. Því er brýnt að þeir sem hafa áhuga á skólavist eða ætla sér að halda áfram námi í Tónstofunni næsta vetur láti skólann vita og sendi inn beiðni til lögheimilissveitarfélags þar að lútandi eins fljótt og mögulegt er.

Sum sveitarfélög hafa þar til gert eyðublað/beiðni á heimasíðu sinni (nám í tónlistarskóla utan lögheimilissveitarfélags) sem nauðsynlegt er að fylla út og skila á viðkomandi skólaskrifstofu.

Hér er einnig umsóknareyðublað frá Tónstofunni sem forráðamenn eru beðnir um að fylla út og skila til Tónstofunnar og lögheimilissveitarfélags ef ekki er um annað eyðublað að ræða á skólaskrifstofunum.

Umsækjendur fyrir næsta skólaár þurfa að vera skuldlausir við Tónstofuna og eru hlutaðeigandi hvattir til að greiða útistandandi skólagjöld fyrir 15. júní. Um greiðslutilhögun má þó alltaf semja svo fremi að haft sé samband við skólann. 

Ef spurningar vakna vinsamlegast hafið þá samband við Tónstofuna í síma 8622040.