Listasmiðja nr. 9
Tón-leikur
28. febrúar 14:00-15:00
Stórhöfða 23
Valgeir Daði Einarsson, kennari í Tónstofu Valgerðar, leiðir músíkstund þar sem hljóðfæri Tónstofunnar vakna til lífsins. Þátttakendur fá að kanna hljóðfærin, gera tilraunir með hljóð og hrynjandi og taka þátt í tónlistarævintýri þar sem við spilum saman í einni stórri hljómsveit. Tón-leikur er aðgengilegur öllum.
Hvar: Stórhöfði 23, gengið inn af jarðhæð að norðanverðu.
Hvenær: Laugardaginn 28. febrúar, klukkan 14:00 – 15:00.
Við bjóðum áhugasöm á öllum aldri hjartanlega velkomin í Listasmiðjuna.