Skapandi starfskraftur óskast

Tónstofa Valgerðar leitar að tónlistarkennara, tónlistarsérkennara, músíkmeðferðarfræðingi eða fjölhæfri tónlistarmanneskju í hlutastarf frá og með næsta skólaári, haustið 2026.

Tónstofan sérhæfir sig í tónlistarkennslu fyrir nemendur sem þurfa sérstakan stuðning vegna fjölbreyttra áskorana. Lögð er áhersla á einstaklingsmiðaða nálgun þar sem styrkleikar, áhugi og þarfir hvers nemanda eru hafðir að leiðarljósi.

Um starfið

  • Starfshlutfall allt að 50%

  • Kennsla í einstaklingstímum og/eða í litlum hópum

  • Viðfangsefni og kennsluaðferðir aðlagaðar hverjum nemanda

Hæfniskröfur

  • Menntun í tónlist, tónlistarkennslu, tónlistarsérkennslu, músíkmeðferð eða sambærilegu námi

  • Reynsla af starfi með einstaklingum sem þurfa sérstakan stuðning æskileg

  • Góð samskiptafærni og umburðarlyndi

  • Jákvæðni, sveigjanleiki og hugmyndaauðgi

  • Sjálfstæð og skipulögð vinnubrögð

Umsókn

Skrifleg umsókn ásamt ferilskrá sendist á netfangið tonsvj@mmedia.is

Nánari upplýsingar veitir Valgerður Jónsdóttir í síma 862-2040

Next
Next

Aðalfundur Foreldra- og styrktarfélags Tónstofunnar.