Skólalok

Kæru nemendur og forráðamenn.

Samkvæmt skóladagatali Tónstofunnar sem finna má á heimasíðu hennar þá lauk kennslu í Tónstofunni föstudaginn 29. maí.

Undirrituð þakkar frábærum kennurum, skólanefndinni, velunnurum, nemendunum öllum og forráðamönnum hjartanlega fyrir gjöfult samstarf, gleði og lærdóm á skólaárinu.

Við hlökkum til að eiga með ykkur fleiri skemmtileg tónlistarævintýra næsta vetur ef velvilji skóla- og frístundasviðs, skóla- og frístundaráðs og borgarráðs gerir okkur mögulegt að lifa áfram. Það er einlæg von okkar að við fáum að starfa áfram til hagsbóta fyrir okkur sjálf og samfélagið allt, en Tónstofan og nemendahópurinn allur vinnur gegn fordómum í garð fatlaðra, eflir skilning á milli einstaklinga sem búa við ólíka getu til athafna, vinnur að inngildingu og berst fyrir jöfnum tækifærum til tónlistarnáms á öllum skólastigum.

Á næstu dögum munum við birta myndir á samfélagsmiðlum Tónstofunnar frá vortónleikunum okkar sem urðu samtals 7 að þessu sinni.

Gleðilegt sumar!

Next
Next

Páskafrí í Tónstofunni