Upphaf skólaársins 2026-2027
Kæru nemendur og forráðamenn.
Við vonum innilega að allir hafi haft það gott í sumar og séu jafnframt tilbúnir til að hefja þátttöku í ævintýrum næsta skólaárs sem er 40 ára afmælisár Tónstofunnar.
Verið er að uppfæra nemendalista. Ef þið hafið ákveðið að taka ykkur frí á næsta skólaári, eða ef námi ykkar í Tónstofunni er lokið bið ég ykkur vinsamlegast um að senda tölvupóst til tonsvj@mmedia.is með upplýsingum þar að lútandi.
Starfsdagar kennara hófust 21. ágúst og í framhaldi af því var haft samband við nemendahópinn vegna stundatöflugerðar. Við reynum eins og kostur er að halda sömu eða svipaðri tímasetningu og sl. skólaár fyrir kennslustundir nemenda, en það auðveldar stundatöflugerðina þar sem kennslurými er takmarkað.
Við ýtum úr vör í dag, fimmtudaginn 27. ágúst. Þá verður stundatöflugerðinni vonandi lokið að mestu svo að full kennsluvika geti hafist mánudaginn 31. ágúst.
Með kærri kveðju,
Kennarar Tónstofunnar