Til forelda/ forráðamanna barna í leik- og grunnskólum, frístundastarfi og tónlistarskólum á höfuðborgarsvæðinu.
Reykjavík 30. 12. 2021
Berist til forelda/ forráðamanna barna í leik- og grunnskólum, frístundastarfi og tónlistarskólum á höfuðborgarsvæðinu.
Komið þið sæl, Dear all, Dzień dobry.
Miðað við hraða útbreiðslu Covid -19 og fjölgun smita í samfélaginu er viðbúið að röskun geti orðið á starfsemi leikskóla, grunnskóla, frístundaheimila, félagsmiðstöðva og tónlistarskóla á komandi dögum. Gera má ráð fyrir að loka þurfi deildum í leikskólum og fella niður kennslu í einstökum árgöngum eða stærri hópum í grunnskólum, um skemmri eða lengri tíma. Stjórnendur munu að öllu jöfnu reyna að leysa forföll eins og hægt er.
Mánudagurinn 3. janúar verður skipulagsdagur í starfsemi grunn- og leikskóla, í frístundastarfi og í tónlistarskólum til að gefa starfsfólki tækifæri til að laga starfsemina að aðstæðum í samfélaginu og gildandi reglugerð.
Þessi síðasta bylgja faraldursins hefur haft mikil áhrif og eru stjórnendur og starfsfólk að gera allt til að röskun sé sem minnst. Til þess að styðja við þá viðleitni þurfa foreldar og forráðamenn að huga vel að persónubundnum sóttvörnum, börn eiga ekki að mæta í skóla með kvef einkenni, verði þeirra vart þarf að fara í PCR próf.
Með bestu kveðju og von um að sem minnst röskun verði á starfinu.
Jón Viðar Matthíasson, framkvæmdastjóri almannavarnanefndar á höfuðborgarsvæðinu. ALMANNAVARNANEFD HÖFUÐBORGARSVÆÐISINS (AHS). Skógarhlíð 14 – 105 Reykjavík – Sími 528 3000 – ahs.is
Reykjavík 30. 12. 2021
To parents/guardians of children in preschools, primary schools, after school programs and music schools in the capital area.
Dear all.
Due to the rapid spread of Covid-19 and the increase in number of infections in the society, a disruption to the activites of preschools, primary schools, after school programs and music schools is exptected. It is expected that parts of preschools (some preschool classrooms) will have to close and teaching in some years or bigger groups in the primary schools will have to be canceled for a longer or shorter period of time. Directors will try to cover absences as much as possible.
Monday the 3rd of January will be a day of organisation in preschools, primary schools, after school programs and music schools in order to give the staff an opportunity to adapt school and leisure activities to the conditions in society and current regulation. This last wave of the epidemic has had a major impact on school activities and directors are doing everything possible to minimize the disruption. In order to support school activities, parents and guardians need to pay special attention to personal infection control. Children should not attend school with symptoms of cold and if there are symptoms a PCR test needs to be taken.
With best regards and hope that there will be as little disruption to activities as possible.
Jón Viðar Matthíasson, Manager of Civil Protection in the capital area ALMANNAVARNANEFD HÖFUÐBORGARSVÆÐISINS (AHS). Skógarhlíð 14 – 105 Reykjavík – Sími 528 3000 – ahs.is
Reykjavík 30. 12. 2021
Przesłanie dla rodzicȯw/opiekunȯw dzieci w przedszkolach i szkołach podstawowych, świetlicach, zajęciach rekreacyjnych, szkołach muzycznych na terenie Reykjavíku.
Dzień dobry.
Biorąc pod uwagę szybkie rozprzestrzenianie się wirusa Covid -19 oraz wzrost liczby zakażeń w społeczności, oczekuje się że w nadchodzących dniach nastąpią zakłócenia w działalności przedszkoli, szkół podstawowych, świetlic, ośrodków rekreacyjnych, centrum młodzieżowych oraz w szkołach muzycznych. Przypuszczać można, że trzeba będzie zamknąć niektȯre grupy w przedszkolach oraz w szkołach podstawowych będą krótsze lub dłuższe lekcje/ nauczanie w poszczególnych klasach lub w grupach. Dyrekcja powinna starać sie organizować zajęcia lekcyjne w sytuacji nieobecności nauczyciela. Poniedziałek 3 stycznia 2022, będzie dniem organizacyjnym /planowania, działalności szkół podstawowych i przedszkoli, świetlic, ośrodków rekreacyjnych, centrum młodzieżowych oraz szkȯł muzycznych, aby dać pracownikom możliwość dostosowania swoich działań/swojej pracy do sytuacji w społeczności i obowiązujących przepisów. Ostatnia fala epidemii wywarła ogromny wpływ na kierownictwo i personel, ktȯry robi wszystko, aby zminimalizować zakłócenia. Aby wesprzeć wysiłki pracownikȯw, rodzice i opiekunowie proszeni są o zwracanie szczególnej uwagi i o kontrolę infekcji u dzieci. Dzieci nie powinny uczęszczać do szkoły z objawami przeziębienia lub muszą wykonywać testu PCR.
Z serdecznymi pozdrawiami i z nadzieją, że będzie jak najmniej zakłóceń w pracy.
Jón Viðar Matthíasson, Z poważaniem, Szef Obrony Cywilnej Obszaru Stołecznego
Aðalfundur Foreldra- og styrktarfélags Tónstofu Valgerðar
Góðan dag.
Aðalfundur Foreldra- og styrktarfélags Tónstofu Valgerðar verður haldinn mánudaginn 8. nóvember kl. 18:30 í Tónstofunni að Stórhöfða 23.
Dagskrá aðalfundarins tekur mið af almennum lögum um fundarsköp og er sem hér segir: 1. Fundarsetning og kosning fundarstjóra. 2. Skýrsla stjórnar. 3. Reikningar félagsins lagðir fram til samþykktar. 4. Ákvörðun félagsgjalda. 5. Lagabreyting. Sjá hér að neðan! 6. Kosning stjórnar. 7. Kosning skoðunarmanna reikninga. 8. Fyrirspurnir og umræður.
Foreldrafélagið starfar fyrir nemendur og foreldra Tónstofunnar. Þeir sem ekki geta mætt á aðalfundinn geta sent fyrirspurnir og athugasemdir varðandi starfsemi, framgang og markmið Foreldra- og styrktarfélags Tónstofunnar sem jafnframt gegnir hlutverki skólanefndar á netfangið tonsvj@mmedia.is
Á heimasíðu Tónstofunnar má finna lög félagsins, skólanámskrá Tónstofunnar og annað efni er tengist starfi Tónstofunnar á liðnum árum. www.tonstofan.is.
Með bréfi þessu vill núverandi stjórn kynna tilurð og starfsemi félagsins.
Foreldra- og styrktarfélag Tónstofu Valgerðar var stofnað haustið 2000. Meginmarkmið þess var að efla Tónstofuna og stuðla að því að hún yrði sjálfstæður tónlistarskóli sem nyti sömu fyrirgreiðslu og aðrir tónlistarskólar en þar sem nemendur sem þyrftu sérstakan stuðning hefðu forgang. Í því sambandi vísar félagið til laga um tónlistarskóla, Aðalnámskrá tónlistarskóla (almennur hluti, 2000) og laga um jafnrétti fatlaðra til náms. Staðreyndin er sú að í Tónstofunni hafa verið nemendur sem ekki hafa átt greiðan aðgang að tónlistarskólum landsins og nemendur sem vísað hefur verið frá námi þegar sýnt þótti að þeir uppfylltu ekki kröfur um námsárangur eða þegar einstakir kennarar gáfust upp af því að sérþekkinguna skorti.
Valgerður Jónsdóttir hefur unnið einstakt og ómetanlegt brautryðjandastarf á þeim árum sem liðin eru frá því Tónstofa hennar tók til starfa (1986). Þar hefur hún og frábærir samkennarar hennar annast kennslu nemenda með mjög mismunandi fatlanir og náð ótrúlegum árangri eins og allir geta borið vitni um sem hlýtt hafa á nemendatónleika Tónstofunnar. Nemendahópurinn er á öllum aldri og kemur úr Reykjavík og nágrannasveitarfélögunum. Námið er aðlagað þörfum og þroska hvers einstaklings. Þeir einstaklingar sem hér um ræðir eiga sér ekki volduga talsmenn. Því er brýnt að allir áhugamenn taki höndum saman og standi vörð um Tónstofu Valgerðar og þá starfsemi sem þar fer fram.
Félagsgjöld og styrktarfé sem félagið aflar hefur meðal annars verið nýtt til kaupa á hljóðfærum svo sem flygli, píanói, hljómborði og ásláttarhljóðfærum. Einnig styrkti félagið kaup á stólum í húsnæðið á Stórhöfða og kaup á myndavél sem nýtist á tónleikum og við kennslu. Félagsgjöld innheimtast að vori en greiðsla þeirra er valfrjáls.
Foreldrafélagið hefur einnig umsjón með Styrktar- og minningarsjóði Bjöllukórs Tónstofu Valgerðar sem stofnaður var í minningu Kára Þorleifssonar sem lést 16. mars 2011. Kári var einn af meðlimum Bjöllukórsins og nemandi Tónstofunnar til margra ára. Frumkvöðlar að stofnun sjóðsins voru foreldrar Kára, þau Þorleifur Hauksson og Guðný Bjarnadóttir. Sjóðurinn er í vörslu Foreldra- og styrktarfélags Tónstofunnar og aflar fjár með minningargjöfum. Markmið Styrktarsjóðsins er að styðja við og efla starfsemi Bjöllukórsins og Tónstofunnar. Minningarkort eru send í gegnum heimasíðu Tónstofunnar https://tonstofan.is/styrktarsjodur/
Foreldra- og styrktarfélag Tónstofu Valgerðar gegnir hlutverki skólanefndar. Í henni sitja nú:
Rut Ríkey Tryggvadóttir, formaður
Gerður Steinþórsdóttir, varaformaður
Gunnhildur Gísladóttir, gjaldkeri Ásthildur Gyða Torfadóttir, ritari Jóhanna Andrea Jónsdóttir, meðstjórnandi Ottó Leifsson, meðstjórnandi
Valgerður Jónsdóttir, meðstjórnandi og fulltrúi kennara
Lög Foreldra- og styrktarfélags Tónstofu Valgerðar eru svohljóðandi:
1. gr.
Félagið heitir Foreldra- og styrktarfélag Tónstofu Valgerðar. Lögheimili og varnarþing félagsins er í Reykjavík. Stjórn félagsins gegnir hlutverki skólanefndar Tónstofu Valgerðar.
2. gr.
Markmið félagsins er að vera stuðningsaðili í öllu starfi skólans.
3. gr.
Markmiðum sínum hyggst félagið ná með því að:
a. Veita skólastjórnendum aðhald og hollráð í innra og ytra starfi skólans.
b. Stuðla að kynningu á starfsemi skólans.
c. Efla samkennd meðal nemenda og foreldra/forráðamanna.
4. gr.
Í félaginu eru foreldrar/forráðamenn nemenda Tónstofunnar. Velunnarar Tónstofunnar sem vilja leggja starfinu lið geta einnig orðið félagsmenn.
5. gr.
Aðalfundur fer með æðsta vald í málefnum félagsins. Hann skal haldinn í október/nóvember árlega. Aðalfund skal boða rafrænt með a.m.k. viku fyrirvara. Fundurinn telst lögmætur sé rétt til hans boðað. Dagskrá aðalfundar tekur mið af almennum lögum um fundarsköp.
6. gr.
Stjórn félagsins skal kjörin á aðalfundi til eins árs í senn. Hún skal skipuð sjö mönnum. Stjórnin skiptir með sér verkum. Reikningsár félagsins er frá 1. ágúst il 31. júlí.
7. gr.
Félagsgjad er valfrjálst. Upphæðin ákvarðast á aðalfundi og innheimtist að vori. Stjórnin sér um fjáröflunarleiðir fyrir félagið.
Kynning á lagabreytingu.
Lagt er til að 4. greinin verði svohljóðandi:
4. gr.
Í félaginu eru lögráða nemendur og foreldrar/forráðamenn nemenda Tónstofunnar. Velunnarar Tónstofunnar sem vilja leggja starfinu lið geta einnig orðið félagsmenn.
Kær kveðja,
Stjórn Foreldra- og styrktarfélags Tónstofu Valgerðar
Svæðisþing tónlistarskóla í Reykjavík - starfsdagur
Kæru nemendur og forráðamenn.
Miðvikudaginn 6. október fellur öll kennsla niður í Tónstofunni vegna starfsdags kennara.
Samkvæmt skóladagatali munu þeir sækja svæðisþing tónlistarskóla sem er vettvangur faglegrar umræðu um málefni tónlistarskólans og tónlistarnáms.
Efnistatriði þingsins eru þessi:
Tónlistarskóli sem lærdómssamfélag.
Markmiðssetning og kennsluáætlanir – skiptir þetta tvennt máli?
Tónlistarskóli fyrir alla – tól og tæki.
Niðurstöður könnunar og umræðuhópa um endurskoðun á aðalnámskrá, frá svæðisþingum 2020.
Starfsþróunarmöguleikar í LHÍ - Námskeið og námsleiðir í boði.
Tónlistarskólinn sem lærdómssamfélag – sérsniðið námskeið fyrir kennara og stjórnendur í tónlistarskólum skólaárið 2021-2022.
Svæðisþing tónlistarskóla er samstarfsverkefni Félags kennara og stjórnenda í tónlistarskólum og Samtaka tónlistarskólastjóra. Þingin eru öllum opin.
Kær kveðja,
Valgerður
Upphaf skólaársins 2021-2022
Kæru nemendur og forráðamenn.
Kennsla hófst á ný eftir sumarfrí mánudaginn 30. ágúst. Kennarar eru þó enn að leggja lokahönd á stundatöflugerðina sem oft getur verið flókin. Umsækjendur á biðlista eru beðnir um að hafa biðlund.
Skólinn mun starfa samkvæmt nýjustu leiðbeiningum frá almannavörnum höfuðborgarsvæðisins um framkvæmd skóla- og frístundastarfs næstu vikurnar. Sjá hér að neðan. Viðmiðin hafa verið samþykkt af neyðarstjórn Reykjavíkurborgar og gilda því um allt skóla- og frístundastarf í Reykjavík.
Með kærri kveðju og góðum óskum um farsælt skóla- og frístundaár,
Kennarar Tónstofunnar.
Tónlistarskólar og skólahljómsveitir:
1. Tónlistarskólum og skólahljómsveitum er heimilt, samkvæmt nánari ákvörðun sveitarfélaga, að halda uppi starfsemi með 1 metra nálægðartakmörkun milli starfsfólks.
2. Mælst er til að starfsemi tónlistarskóla og skólahljómsveita sé hólfaskipt eins og kostur er í samræmi við aðstæður og stjórnendur nýti fyrri reynslu í útfærslu á skipulagi starfsins.Tilgangurinn er að koma í veg fyrir röskun á starfsemi komi upp smit og hefta mögulega útbreiðslu innan skólans. Starfsfólk er hvatt til að fara sem minnst milli rýma/hólfa. Það er þó heimilt ef aðstæður krefjast og í þeim tilvikum skal gæta vel að persónubundnum sóttvörnum.
3. Þegar starfsfólk og nemendur fæddir árið 2005 og fyrr ná ekki að virða 1 metra nálægðartakmörk verður að nota andlitsgrímu.
4. Nemendur á grunnskólaaldri eru undanþegnir 1 metra nálægðartakmörkun og grímuskyldu í starfi tónlistarskóla og skólahljómsveita, en eru hvattir til fyllstu varkárni og huga að
persónubundnum sóttvörnum.
5. Foreldrar og aðstandendur mega koma inn í tónlistarskóla en skulu gæta að persónubundnum sóttvörnum og bera andlitsgrímur. Stjórnendum er heimilt að takmarka enn frekar komu gesta í tónlistarskóla.
6. Mælst er til að ekki séu fleiri en 100 nemendur í hverju rými/hólfi.
7. Mælst er til að viðburðum á vegum tónlistarskóla verði streymt. Ef það er ekki mögulegt og nauðsynlegt að halda viðburð skal fjöldi miðast við að gestir geti virt 1 metra nálægðartakmörkun, grímuskylda viðhöfð og gætt sérstaklega að persónubundnum
sóttvörnum. Allir gestir skulu skráðir í númeruð sæti með nafni, kennitölu og símanúmeri, varðveita skal skrána í tvær vikur og eyða henni að þeim tíma liðnum.
8. Aðrir sem koma inn í bygginguna, svo sem vegna vöruflutninga, skulu gæta 1 metra nálægðartakmörkun, bera andlitsgrímur og gæta að persónubundnum sóttvörnum.
9. Gæta þarf ýtrustu sóttvarna á starfsmannafundum og að 1 metra nálægðartakmörk séu alltaf virt.
10. Ráðstafanir skulu gerðar til að þrífa og sótthreinsa byggingar eftir hvern dag og milli hópa í sama rými.
11. Útlán eða afnot af skólabyggingum til utanaðkomandi hópa skal takmörkuð eins og kostur er.
155
People Reached
10
Engagements
–
Distribution Score
66
Endurnýjun umsókna skólaárið 2021-2022
Kæru nemendur og forráðamenn.
Undirbúningur fyrir skólaárið 2021-2022 er hafinn. Nauðsynlegt er að endurnýja umsókn árlega bæði í tónlistarskólanum sjálfum og hjá lögheimilissveitarfélagi nemandans.
Vakin er athygli á því að ef tónlistarskóli nemanda er utan lögheimilissveitarfélags, þarf staðfest samþykki lögheimilissveitarfélags að liggja fyrir áður en nemandi hefur eða heldur áfram námi í tónlistarskólanum. Því er brýnt að þeir sem ætla sér að halda áfram námi í Tónstofunni veturinn 2021-2022 láti skólann vita og sendi inn beiðni til lögheimilissveitarfélags þar að lútandi eins fljótt og mögulegt er.
Sum sveitarfélög hafa þar til gert eyðublað/beiðni á heimasíðu sinni (nám í tónlistarskóla utan lögheimilissveitarfélags), sem nauðsynlegt er að fylla út og skila á viðkomandi skólaskrifstofu. Sjá eyðublöð á heimasíðunni undir krækjunni Innritun.
Umsókn um skólavist fyrir næsta vetur er hvorki bindandi af hálfu umsækjanda né af hálfu skólans. Aðstæður skólans breytast frá ári til árs, en á hverjum tíma er reynt að koma til móts við eins marga umsækjendur og mögulegt er.
Umsækjendur fyrir næsta skólaár þurfa að vera skuldlausir við Tónstofuna og eru hlutaðeigandi hvattir til að greiða útistandandi skólagjöld fyrir 1. júní 2021. Um greiðslutilhögun má þó alltaf semja svo fremi að haft sé samband við skólann.
Ef spurningar vakna vinsamlegast hafið samband við skólastjóra Tónstofunnar í síma 8622040 eða á netfanginu tonsvj@mmedia.is
Sjá tónlistarnám í Reykjavík - http://reykjavik.is/thjonusta/tonlistarnam-i-reykjavik
Electronic applications for enrollment in Music schools in Reykjavik have begun. Enrolled students need to renew their applications in consultation with their teacher and school authorities. Electronic application can be accessed through Reykjavík - www.rafraen.reykjavik.is
The school's secretary can also assist parents in their application process.
Students who live outside Reykjavík must also contact their school administration office and apply for support due to "nám utan lögheimilissveitarfélag".
If questions arise please contact Valgerður
Phone: 8622040
tonsvj@mmedia.is
Kær kveðja,
Valgerður
Auka frístundastyrkur! Kynnið ykkur rétt ykkar!
Kæru forráðamenn og nemendur.
Eru ekki allir búnir að ráðstafa frístundastyrknum sem ætla að nýta sér hann á vorönninni?
Ég hvet ykkur einnig til að kanna rétt ykkar á auka frístundastyrk að upphæð krónur 45 þúsund frá Reykjavíkurborg. Umsóknarfrestur hefur verið framlengdur til 15. apríl.
https://island.is/styrkur-til-ithrotta-og-tomstundastarfs
Hér fyrir neðan er tengill með texta frá fjölmenningarsetrinu á 11 tungumálum.
Vetrarfrí 22. og 23. febrúar!
Kæru nemendur og forráðamenn.
Við minnum á vetrarfríið í Tónstofunni mánudaginn 22. febrúar og þriðjudaginn 23. febrúar.
Kær kveðja,
kennarar Tónstofunnar
Dagur tónlistarskólanna
Fyrsti laugardagur febrúarmánaðar er tileinkaður Tónlistarskólum þessa lands. Markmið dagsins er að vekja athygli á fjölbreyttri og öflugri starfsemi tónlistarskólanna í landinu og að styrkja tengsl við nærsamfélagið.
Á Degi tónlistarskólanna nota þeir tækifærið og standa fyrir alls kyns viðburðum, svo sem tónleikum, fyrirlestrum, opnu húsi, námskeiðum, hljóðfærakynningum og fleiru. Þá heimsækja nemendur einnig aðra skóla, vinnustaði og heilbrigðisstofnanir í þeim tilgangi að kynna starfið og gleðja aðra með leik og söng. Á liðnum árum hefur Bjöllukór Tónstofu Valgerðar verið í framvarðarsveit skólans þennan dag og tekið á móti gestum með leik og söng. Í ár nýtum við daginn og febrúarmánuð til að kynna á rafrænan hátt starfsemi Tónstofunnar og mikilvægi skólans í íslensku samfélagi sem og í flóru þeirra tónlistarskóla landsins sem hún tilheyrir.
Dagur tónlistarskólanna er tileinkaður minningu dr. Gylfi Þ. Gíslasonar (7. febrúar 1917- 18. ágúst 2004) sem var menntamálaráðherra frá 1956-1971 eða í 15 ár. Í embætti beitti hann sér fyrir margvíslegum umbótum í skóla- og menningarmálum sem við búum enn að. Árið 1959 gaf dr. Gylfi út reglugerð um stofnun söngkennaradeildar (síðar nefnd tónmenntakennaradeild) við Tónlistarskólann í Reykjavík til þess að bæta úr kennaraskorti. Síðar voru svo einnig stofnaðar hljóðfærakennaradeildir. Dr. Gylfi beitti sér jafnframt fyrir undirbúningi að stofnun tónlistarskóla á landsbyggðinni, en samkvæmt heimildum voru tíu tónlistarskólar á Íslandi árið 1960. Þeir voru allir í einkarekstri og sumstaðar reknir við svo bág skilyrði og mikið öryggisleysi, að skólahald gat fallið niður ef illa áraði. Þessir skólar nutu einhvers stuðnings sveitarfélaga og styrkja úr ríkissjóði, en um það giltu engar reglur. Haustið 1962 boðaði dr. Gylfi skólastjórana til tveggja daga fundar í Reykjavík. Fundinum lauk með ályktun í tíu liðum, þar sem mörkuð var í höfuðatriðum sú stefna sem fylgt var næstu áratugi í þróun tónmenntakennslu í landinu.
Í minningargrein um dr. Gylfa Þ. Gíslason ritar Sigursveinn Magnússon fyrir hönd Samtaka tónlistarkóla í Reykjavík (27. ágúst 2004, mbl.is). „ … Mig langar í fáum orðum að minna á hinn stóra þátt Gylfa í menningarsókn þjóðarinnar á sviði tónlistarmenntunar á 7. áratugnum. Hann var sjálfur fróður um tónlist og hagur sönglagasmiður og skildi vel áhrifamátt tónlistarinnar. Eitt af fyrstu verkum hans sem menntamálaráðherra var að skoða stöðu tónlistarmenntunar í landinu og hafa frumkvæði að lagasetningu um opinber framlög til hennar, en Ísland var þá enn skammt á veg komið á þessu sviði. Gylfi taldi að skapa þyrfti skilyrði til að gera tónlistarnám aðgengilegt fyrir alla, óháð efnahag og búsetu og það yrði best gert í samvinnu ríkisins og sveitarfélaganna. Þetta skipulag reyndist síðan hin mesta völundarsmíð, virkaði hvetjandi á sveitarfélög til stofnunar tónlistarskóla. Nauðsynleg hvatning, stöðugleiki og fagleg leiðsögn var tryggð með kostnaðarhlutdeild ríkisins. Lögin um fjárhagslegan stuðning við tónlistarskóla sem samþykkt voru á alþingi árið 1963 að forgöngu Gylfa Þ. Gíslasonar hafa valdið straumhvörfum í tónlistarmenntun þjóðarinnar og verið forsenda fyrir þeim framförum sem eru heyranleg hvarvetna í kringum okkur. Árangursrík tónlistarmenntun á Íslandi hefur einnig spurst út og orðið fyrirmynd annarra þjóða vegna þess hve skipulag hennar er einfalt og skilvirkt. Lát Gylfa ber að á sama tíma og tónlistarskólarnir eru að nesta sig fyrir vetrarstarfið og nemendur stilla hljóðfærin sín fyrir krefjandi æfingar til að öðlast enn meiri færni og vinna ný lönd á sviði listarinnar. Tónlistarnám er nú sjálfsagður hluti af námi þúsunda Íslendinga og snertir daglegt líf allrar þjóðarinnar. Okkur er hollt að muna að þessi þróun hefur ekki orðið fyrir tilviljun heldur fyrir einbeittan vilja þeirra sem valist hafa til ábyrgðar og vilja hafa áhrif á samfélagið til að efla okkur sem þjóð í átökum við ókunn öfl í mósku framtíðarinnar. Megi sá vorhugur og dirfska sem einkenndi verk Gylfa Þ. Gíslasonar enn ríkja í framtíð tónlistarmenntunar á Íslandi. …“
Uppfærðar upplýsingar um fjölda tónlistarskóla í landinu á þessu skólaári (2020-2021) eru ekki aðgengilegar né heldur upplýsingar um fjölda tónlistarkennara og tónlistarnemenda. En nærri lætur að skólarnir séu um 85 talsins, að fjöldi tónlistarkennara sé mörg hundruð og að nemendahópurinn telji þúsundir.
Enn er vorhugur í framvarðarsveit tónlistarskólanna. Tónlistarlífið í landinu blómstrar sem aldrei fyrr og er bæði þróttmikið og fjölbreytilegt þrátt fyrir áskoranir þær sem Covid-19 hefur lagt á okkur. Við horfum bjartsýn til framtíðar og væntum mikils af nýrri löggjöf um tónlistarskóla. Löggjöf sem: styrkir undirstöður starfsins enn frekar, slær í takt við nýja tíma, viðurkennir mikilvægi tónlistarskólanna í menntun þjóðar og eflir hlutverk tónlistarskólanna í þágu samfélagsins, menntunar og menningar fyrir alla.
Til hamingju með daginn!
Valgerður Jónsdóttir, skólastjóri Tónstofu Valgerðar
Breyting á frístundakerfi Reykjavíkurborgar.
Kæru forráðamenn.
Eins og nefnt var í upplýsingunum hér að neðan þá varð örlítil töf á innheimtu skólagjalda um þessi mánaðarmót (greiðsla 3 af 4) hjá þeim nemendum Tónstofunnar sem hafa rétt á að ráðstafa frístundakorti Reykjavíkurborgar (nemendur 6 – 18 ára).
Nú er skráningu/uppfærslu á kerfinu lokið og geta foreldrar nú ráðstafað frístundakortinu að vild. Það er gert með því að fara inn á www.fristund.is
Þar er valið Frístundagátt ráðstöfun, og forráðamaður skráir sig inn með rafrænum skilríkjum. Ef fólk á í vandræðum með að ráðstafa getur það sent fyrirspurnir, ábendingar eða kvartanir á netfangið fristundakort@itr.is
Tónstofan skráir nemendahópinn sinn í Sérkennslu I, Sérkennslu II, Sérkennslu III eða Sérkennslu IV. Sjá upplýsingar á heimasíðu skólans https://tonstofan.is/gjaldskra
Velja þarf rétt þegar nemandi er skráður í kerfið þar sem skólagjöld eru breytileg eftir lengd tímasóknar. Ef spurningar vakna varðandi innheimtuna eða ef vafi leikur á hvernig nemandi er skráður, hvet ég ykkur til að hafa samband við undirritaða í tölvupósti tonsvj@mmedia.is eða í síma 8622040. Fyrirspurnum verður vísað áfram til verkefnastjóra á skrifstofu Íþrótta- og tómstundasviðs Reykjavíkur ef nauðsyn krefur.
Ég vek athygli á því að innheimtuseðill hefur verið sendur í heimabanka forráðamanna. Það var gert til að minna fólk á að ráðstafa sem fyrst frístundastyrknum (standi það til). Innheimtuseðillinn verður felldur niður eða upphæð hans breytt í takt við ráðstöfun viðkomandi. Ég vona innilega að þessar breytingar hjá Reykjavíkurborg valdi hvorki forráðamönnum né skólanum óþarfa óþægindum.
Ég minni á að nemendur með lögheimili í Kópavogi og í öðrum sveitarfélögum geta einnig ráðstafað frístundastyrk sínum til Tónstofunnar.
Með kærri kveðju og góðum óskum,
Valgerður
Frá aðalfundi Foreldra- og styrktarfélags Tónstofunnar 2020
Foreldra- og styrktarfélag Tónstofunnar sem jafnframt gegnir hlutverki skólanefndar hélt aðalfund sinn mánudaginn 30. nóvember. Dagskrá fundarins tók mið af almennum lögum um fundarsköp. Rut Ríkey Tryggvadóttir formaður las greinargóða skýrslu stjórnar. Gunnhildur Gísladóttir gjaldkeri lagði fram reikninga félagsins og voru þeir samþykktir.
Anna Björg Halldórsdóttir og Sigurjón Högnason gáfu áfram kost á sér sem skoðunarmenn reikninga. Þökkum við þeim kærlega fyrir vel unnin störf á liðnum árum. Engin framboð bárust til setu í stjórn félagsins. Stjórnin gaf því öll kost á sér til áframhaldandi setu. Samkvæmt lögum félagsins er stjórn kosin til eins árs í senn. Undirrituð færir stjórninni innilegar þakkir fyrir trygglyndi, frábær störf, stuðning og velvild alla á liðnum árum.
Fundurinn ákvað að halda félagsgjöldunum óbreyttum, eða krónur 3.000. Þau innheimtast að vori en greiðslan er valfrjáls.
Á fundinum voru þakkir færðar fyrir styrki og gjafir sem borist höfði Tónstofunni frá síðasta aðalfundi. Súsanna Ernst Friðriksdóttir gladdi Tónstofuna enn á ný með góðri gjöf um jól 2019, sem nýtt var til að fella niður skólagjöld vegna sérstakra aðstæðna hjá nemendum. Í júnímánuði barst Tónstofunni hjartfólgin gjöf frá Luigi Bartolozzi og Ragnheiði Sverrisdóttur, í minningu dóttur þeirra Alexiu Bartolozzi heitinnar, sem fæddist 8. júlí 1995 og lést 6. apríl 2010. Gjöfin voru hljóðfæri Alexiu en hún var nemandi hjá Jónu Þórsdóttur í Tónstofunni frá janúar 2006 fram að dánar dægri og hafði mikið yndi af tónlist. Hljóðfærin nýtast nemendum Tónstofunnar sem sækja tíma sína í Klettaskóla og Öskju þar sem Alexia var einnig nemandi.
Jafnframt þökkum við innilega fyrir stóla og borð sem bárust frá hjónunum Jóhönnu Andreu Jónsdóttur og Árna Tómasi Ragnarssyni. Mublurnar sóma sér vel í Tónstofunni og gera bið nemenda og forráðamanna þægilega.
Undirrituð hvetur nemendur og forráðamenn til að hafa samband vilji þeir gera athugasemdir við störf félagsins/skólanefndarinnar og einnig ef þeir luma á góðum hugmyndum varðandi starf og framtíð Tónstofunnar.
Með kærri aðventukveðju,
Valgerður
Aðalfundur Foreldra- og styrktarfélags Tónstofu Valgerðar 2020
Góðan dag.
Aðalfundur Foreldra- og styrktarfélags Tónstofu Valgerðar verður haldinn mánudaginn 30. nóvember kl. 18:30 í Tónstofunni að Stórhöfða 23.
Dagskrá aðalfundarins tekur mið af almennum lögum um fundarsköp og er sem hér segir:
1. Kosning fundarstjóra og fundarsetning.
2. Skýrsla stjórnar.
3. Reikningar félagsins lagðir fram til samþykktar.
4. Ákvörðun félagsgjalda.
5. Kosning stjórnar.
6. Kosning skoðunarmanna reikninga.
7. Fyrirspurnir og umræður.
Vegna fjöldatakmarkana í samkomubanni biður stjórn félagsins þá sem ætla að mæta á aðalfundinn um að senda tölvupóst á netfangið tonsvj@mmedia.is eigi síðar en fyrir klukkan 12, laugardaginn 28. nóvember. Foreldrafélagið starfar fyrir nemendur og foreldra Tónstofunnar. Fyrirspurnir og athugasemdir varðandi starfsemi, framgang og markmið Foreldra- og styrktarfélags Tónstofunnar, sem jafnframt gegnir hlutverki skólanefndar, má senda á netfangið tonsvj@mmedia.is
Á heimasíðu Tónstofunnar má finna lög félagsins, skólanámskrá Tónstofunnar og annað efni er tengist starfi Tónstofunnar á liðnum árum. www.tonstofan.is.
Með bréfi þessu vill núverandi stjórn kynna tilurð og starfsemi félagsins.
Foreldra- og styrktarfélag Tónstofu Valgerðar var stofnað haustið 2000. Meginmarkmið þess var að efla Tónstofuna og stuðla að því að hún yrði sjálfstæður tónlistarskóli sem nyti sömu fyrirgreiðslu og aðrir tónlistarskólar en þar sem nemendur sem þyrftu sérstakan stuðning hefðu forgang. Í því sambandi vísar félagið til laga um tónlistarskóla, Aðalnámskrá tónlistarskóla (almennur hluti, 2000) og laga um jafnrétti fatlaðra til náms. Staðreyndin er sú að í Tónstofunni hafa verið nemendur sem ekki hafa átt greiðan aðgang að tónlistarskólum landsins og nemendur sem vísað hefur verið frá námi þegar sýnt þótti að þeir uppfylltu ekki kröfur um námsárangur eða þegar einstakir kennarar gáfust upp af því að sérþekkinguna skorti.
Valgerður Jónsdóttir hefur unnið einstakt og ómetanlegt brautryðjandastarf á þeim árum sem liðin eru frá því Tónstofa hennar tók til starfa (1986). Þar hefur hún og frábærir samkennarar hennar annast kennslu nemenda með mjög mismunandi fatlanir og náð ótrúlegum árangri eins og allir geta borið vitni um sem hlýtt hafa á nemendatónleika Tónstofunnar. Nemendahópurinn er á öllum aldri og kemur úr Reykjavík og nágrannasveitarfélögunum. Námið er aðlagað þörfum og þroska hvers einstaklings. Þeir einstaklingar sem hér um ræðir eiga sér ekki volduga talsmenn. Því er brýnt að allir áhugamenn taki höndum saman og standi vörð um Tónstofu Valgerðar og þá starfsemi sem þar fer fram.
Félagsgjöld og styrktarfé sem félagið aflar hefur meðal annars verið nýtt til kaupa á hljóðfærum svo sem flygli, píanói, hljómborði og ásláttarhljóðfærum. Einnig styrkti félagið kaup á stólum í húsnæðið á Stórhöfða og kaup á myndavél sem nýtist á tónleikum og við kennslu. Félagsgjöld innheimtast að vori en greiðsla þeirra er valfrjáls.
Foreldrafélagið hefur einnig umsjón með Styrktar- og minningarsjóði Bjöllukórs Tónstofu Valgerðar sem stofnaður var í minningu Kára Þorleifssonar sem lést 16. mars 2011. Kári var einn af meðlimum Bjöllukórsins og nemandi Tónstofunnar til margra ára. Frumkvöðlar að stofnun sjóðsins voru foreldrar Kára, þau Þorleifur Hauksson og Guðný Bjarnadóttir. Sjóðurinn er í vörslu Foreldra- og styrktarfélags Tónstofunnar og aflar fjár með minningargjöfum. Markmið Styrktarsjóðsins er að styðja við og efla starfsemi Bjöllukórsins og Tónstofunnar. Minningarkort eru send í gegnum heimasíðu Tónstofunnar https://tonstofan.is/styrktarsjodur/
Foreldra- og styrktarfélag Tónstofu Valgerðar gegnir hlutverki skólanefndar.
Í henni sitja nú:
Rut Ríkey Tryggvadóttir, formaður
Gerður Steinþórsdóttir, varaformaður
Gunnhildur Gísladóttir, gjaldkeri
Ásthildur Gyða Torfadóttir, ritari
Jóhanna Andrea Jónsdóttir, meðstjórnandi
Ottó Leifsson, meðstjórnandi
Valgerður Jónsdóttir, meðstjórnandi og fulltrúi kennara
Leiðbeiningar vegna skólastarfs Tónstofunnar á neyðarstigi. Gildistími 7. til 19. október.
Kæru nemendur og forráðamenn.
Tónstofan fylgir fyrirmælum frá skóla- og frístundasviði Reykjavíkurborgar og reynir að halda óbreyttri starfsemi.
Til upplýsingar þá eru nýjar leiðbeiningar í vinnslu fyrir tónlistarskóla vegna skólastarfs á neyðarstigi en hægt er að fylgjast með breytingum á vef menntamálaráðuneytisins (mrn.is/skolastarf) „Spurt og svarað: skólastarf og COVID-19“, undir flipanum „Tónlistarskólar“.
Kennarar nota grímur með öllum nemendahópnum þar sem erfitt getur verið að halda viðunandi fjarlægð. Engir hóptímar með blönduðum nemendahópum eru leyfðir (Radd-leikur, Tón-leikur, Bjöllukór, föstudagshópur Jónu).
Tveggja metra reglan er viðhöfð á milli kennara og á milli kennara og forráðamanna sem fylgja börnum sínum.
Engir utanaðkomandi fá aðgang að Tónstofunni og sótthreinsun á hljóðfærum og yfirborðsflötum hefur verið aukin.
Munum að nemandi/kennari/aðstandandi sem finnur fyrir flensulíkum einkennum (hósta, andþyngslum, mæði, hálssærindum, hita, þreytu, höfuðverk, beinverkjum, uppköstum og niðurgangi, hroll og minnkuðu bragð- og lyktarskyni) hann heldur sig heima!
Gangi okkur öllum vel!
Kær kveðja, Valgerður
Upplýsingar í byrjun skólaárs
Kæru nemendur og forráðamenn.
Skólaárið hófst 21. ágúst með æfingum Bjöllukórsins, en fyrsti reglulegi kennsludagurinn var 25. ágúst. Í upphafi skólaársins eru 122 nemendur skráðir í skólann og eftirvæntingarfullur hljómur þeirra streymir nú úr hverju horni. Stundatöflurnar eru enn á örlítilli hreyfingu sem er eðlilegt á meðan forráðamenn og kennarar eru að skipuleggja og samræma oft flókna dagskrá nemendahópsins.
Nokkrar breytingar hafa orðið á starfsliði Tónstofunnar á milli ára og kveðjum við nú Ásrúnu I. Kondrup sem var í 37% kennarastöðu og Kirstínu Ernu Blöndal sem var í 25% kennarastöðu. Mikil eftirsjá er að starfskröftum þeirra. Við þökkum þeim innilega fyrir ljúfa nærveru og frábær störf á liðnum árum og óskum þeim velfarnaðar í lífi og starfi.
Við erum svo lánsöm að njóta starfskrafta Mínervu M. Haraldsdóttur sem kenndi nemendum Marie Huby er kemur nú til baka eftir árs barneignarleyfi. Mínerva tekur við nemendum Ásrúnar. Ari Agnarsson er kominn úr veikindaleyfi og verða kennarar Tónstofunnar því fimm í vetur.
Búið er að skrá nemendahópinn í frístundakerfi Reykjavíkurborgar og Kópavogs og geta nemendur/forráðamenn nú ráðstafað styrknum til Tónstofunnar óski þeir þess.
Skólagjöld Tónstofunnar hafa hækkað lítillega á milli ára og er það vegna útgjaldaliða að kröfu Skóla- og frístundasviðs Reykjavíkurborgar sem og hækkunar húsaleigu sem ekki verður mætt með öðrum hætti.
Sóttvarnir í Tónstofunni.
Mikilvægt er að kennarar, nemendur og forráðamenn mæti ekki í Tónstofuna ef þeir finna fyrir einkennum sem gætu stafað af COVID-19 (einkennin geta líkst venjulegri flensu).
Kennarar og nemendur fylgja fyrirmælum frá Skóla- og frístundasviði varðandi sóttvarnir og hafa sýnt sérstaka aðgát til að koma í veg fyrir röskun á skólastarfi.
Að höfðu samráði við fræðslustjóra sveitarfélaganna á höfuðborgarsvæðinu er lagt til að farið sé varlega í breytingar og að 2ja metra nálægðartakmörk séu virt fyrir aðila sem ekki tengjast skólanum. Jafnframt gildir eftirfarandi:
Eins metra regla er viðhöfð.
Nemendur, kennarar og forráðamenn eru hvattir til að þvo sér og nota handspritt við komu í skólann og einnig áður en þeir fara. Óski nemandi eftir því að nota grímu í kennslustund er hann hvattur til að koma með sína eigin en getur þó fengið grímu í Tónstofunni.
Tónstofan fylgir sérstökum leiðbeiningum um þrif í skólum. Fyllsta hreinlætis er gætt og borð, stólar, hljóðfæri og önnur tæki sem notuð eru við kennslu eru sótthreinsuð á milli nemanda. Aðrir yfirborðsfletir svo sem hurðarhúnar eru sótthreinsaðir daglega.
Tónlistarkennarar sem fara á milli skóla huga vel að persónubundnum sóttvarnaráðstöfunum og nálægðartakmörkunum. Þeir nýti sem minnst sameiginleg rými í mismunandi skólum t.d. salerni og kaffistofur.
Aðgengi utanaðkomandi aðila sem ekki tengjast skólasamfélaginu skal vera sem minnst.
Utanaðkomandi aðilar virði alltaf minnst 2ja metra regluna við alla í skólanum bæði starfsfólk og nemendur auk persónubundna sóttvarna.
Starfsemi sem ekki tengist skólanum er ekki leyfð til og með 20. september t.d. kórastarf fullorðinna og hópfundir með foreldrum.
Skólastjórnendur haldi áfram að takmarka blöndun starfsfólks t.d. á milli húsa og starfseininga eins og kostur er.
Staðan verður endurmetin í samráði við fræðslustjóra sveitarfélaga á höfuðborgarsvæðinu fyrir sunnudaginn 20. september n.k.
Forráðamenn og nemendur eru hvattir til að hafa samband við undirritaða í síma 8622040 eða í tölvupósti tonsvj@mmedia.is vakni spurningar um fyrirkomulag námsins eða annað er snertir hag nemenda/forráðamanna.
Með kærri kveðju,
Valgerður
Upphaf skólaársins 2020-2021
Kæru nemendur, nýir umsækjendur og forráðamenn.
Undirbúningur fyrir vetrarstarfið er hafinn og kennarar setja saman stundatöflurnar í vikunni. Ef vel gengur hefst kennsla þriðjudaginn 25. ágúst. Við bendum ykkur á að hægt er að senda kennurum tölvupóst með upplýsingum um þær tímasetningar sem henta ykkur best. Reynt verður að koma til móts við óskir eins vel og kostur er.
Við vonum að þið hafið notið sumars og séuð spennt fyrir ljúfum leik á komandi vetri. Í ljósi Covid má búast við óvæntum áskorunum af ýmsu tagi. Við munum takast á við þær í sameiningu og af umburðarlyndi og fylgja reglum frá Skóla- og frístundasviði Reykjavíkurborgar út í æsar.
Með kærri kveðju og tilhlökkun!
Skólalok 29. maí.
Kæru nemendur og forráðamenn.
Síðasti reglubundni kennsludagurinn og eiginleg skólaslit á þessu skólaári er föstudagurinn 29. maí.
Allt formlegt tónleikahald fellur niður að þessu sinni því miður!
Nú þurfa allir sem ætla að halda námi sínu áfram næsta skólaár að vera búnir að:
1. tilkynna það kennurum sínum.
2. sækja um skólavist í Tónstofunni á vefnum Rafræn Reykjavík (það er hægt að fá aðstoð við það).
3. Nemendur með lögheimili utan Reykjavíkur þurfa einnig að vera búnir að sækja um hjá lögheimilissveitarfélagi sínu (vegna náms utan lögheimilissveitarfélags). Mjög mikilvægt!
Við þökkum nemendahópnum og forráðamönnum þeirra kærlega fyrir umburðarlyndi og skilning á þessum erfiðu tímum. Einnig viljum við þakka foreldrum fyrir hjálpsemi þeirra og nærveru við fjarkennsluna sem var lærdómsrík fyrir alla sem tóku þátt í henni.
Kæru nemendur og forráðamenn við óskum ykkur gleðilegs og gæfuríks sumars og hlökkum til að sjá ykkur næsta haust full af sólskinsorku og leikgleði.
Kærleikskveðja og knús.
Tilkynning frá Foreldra- og styrktarfélagi Tónstofunnar
Frá stjórn Foreldra- og styrktarfélags Tónstofu Valgerðar.
Eni: Kynning á Foreldra- og styrktarfélagi Tónstofunnar vegna innheimtu félagsgjalda.
Foreldra- og styrktarfélag Tónstofu Valgerðar var stofnað haustið 2000. Meginmarkmið þess var að efla Tónstofuna og stuðla að því að hún yrði sjálfstæður tónlistarskóli sem nyti sömu fyrirgreiðslu og aðrir tónlistarskólar en þar sem einstaklingar sem þyrftu sérstakan stuðning í námi hefðu forgang. Í því sambandi vísar félagið til laga um tónlistarskóla, Aðalnámskrá tónlistarskóla (almennur hluti, 2000) og laga um jafnrétti fatlaðra til náms. Staðreyndin er sú að í Tónstofunni hafa verið nemendur sem ekki hafa átt greiðan aðgang að tónlistarskólum landsins og nemendur sem vísað hefur verið frá námi þegar sýnt þótti að þeir uppfylltu ekki kröfur um námsárangur eða þegar einstakir kennarar gáfust upp af því að sérþekkinguna skorti.
Valgerður Jónsdóttir hefur unnið einstakt og ómetanlegt brautryðjandastarf á þeim árum sem liðin eru frá því Tónstofa hennar tók til starfa (1986). Þar hefur hún og frábærir samkennarar sem komu til starfa árið 2005 annast kennslu nemenda með mjög mismunandi fatlanir og náð ótrúlegum árangri eins og allir geta borið vitni um sem hlýtt hafa á nemendatónleika Tónstofunnar. Nemendahópurinn er á öllum aldri og kemur úr Reykjavík og nágrannasveitarfélögunum. Námið er aðlagað þörfum og þroska hvers einstaklings. Þeir einstaklingar sem hér um ræðir eiga sér ekki volduga talsmenn. Því er brýnt að allir áhugamenn taki höndum saman og standi vörð um Tónstofu Valgerðar og þá starfsemi sem þar fer fram.
Auk þess að standa vörð um starfsemina og vinna að því að efla hana hefur Foreldra- og styrktarfélagið sótt styrki til fyrirtækja, sem ásamt félagsgjöldum hafa meðal annars verið nýttir til kaupa á hljóðfærum svo sem flygli, píanói, hljómborði og ásláttarhljóðfærum. Einnig styrkti félagið kaup á stólum í nýja húsnæðið uppi á Stórhöfða og kaup á myndavél sem nýtist á tónleikum og við kennslu. Foreldrafélagið hefur einnig umsjón með Styrktarsjóði Bjöllukórs Tónstofu Valgerðar sem stofnaður var í minningu Kára Þorleifssonar sem lést 16. mars 2011 en Kári var einn af meðlimum Bjöllukórsins og nemandi Tónstofunnar. Markmið sjóðsins er að efla starfsemi Bjöllukórsins. Frekari upplýsingar um Tónstofuna má finna á heimasíðu skólans.
Foreldrafélagið hvetur nemendur og aðstandendur til að styðja starf félagsins með greiðslu félagsgjalda en áréttar a greiðslan er valfrjáls. Foreldra- og styrktarfélag Tónstofu Valgerðar gegnir hlutverki skólanefndar. Í henni sitja:
Rut Ríkey Tryggvadóttir, formaður
Gerður Steinþórsdóttir, varaformaður
Gunnhildur Gísladóttir, gjaldkeri
Ásthildur Gyða Torfadóttir, ritari
Jóhanna Andrea Jónsdóttir, meðstjórnandi
Ottó Leifsson, meðstjórnandi
Valgerður Jónsdóttir, fulltrúi kennara
Upplýsingar um skólahald frá og með 4. maí.
Upplýsingar um skólahald frá og með 4. maí.
Kæru nemendur og forráðamenn.
Takmarkanir á skólahaldi falla úr gildi frá og með mánudeginum 4. maí.
Þá verður skólastarf barna á leik- og grunnskólaaldri með hefðbundnum hætti og hvorki fjölda- né nálægðartakmörk munu gilda. Nám þessara barna í tónlistarskólum verður því með eðlilegum hætti.
Tónlistarskólakennarar mega fara inn í grunnskólana og í frístundaheimilin til að kenna.
Takmarka þarf aðgengi foreldra/utanaðkomandi að skólahúsnæðinu eins og kostur er.
Takmarka þarf skörun hópa eða blöndun hópa úr ólíkum samfélagshópum eins og kostur er.
Nemendur frá 16 ára aldri mega á ný mæta í sínar skólabyggingar. Þeir geta því einnig mætt í tónlistarskólana en huga þarf vel að 2ja metra fjarlægðinni.
Kennarar, nemendur og forráðamenn þurfa að vega og meta hvort taka eigi áhættu ef kennsluhættir og annað kemur í veg fyrir að hægt sé að halda 2ja metra regluna hjá þeim sem orðnir eru 16 ára. Kennarar munu nota hlífðarbúnað (hanska og andlitshlífar) ef þurfa þykir með þessum nemendum.
Kennsla sem fer fram í hóptímum, (s.s. forskóli, tónfræðagreinar, fámennir hópar, 2-12) er heimil. Athuga ber 2ja metra regluna með nemendum 16 ára og eldri.
Samleikur/-söngur, samspil í fámennum hópum er heimill en athuga ber 2ja metra reglu með nemendum 16 ára og eldri.
Hljómsveitaræfingar (frá fámennum hópum til stærri hljómsveita) eru heimilar en 2ja metra reglan gildir hjá 16 ára og eldri.
Fjöldatakmarkanir í kennsluhúsnæði verða í gildi og mega aðeins 50 einstaklingar vera í sama rými í þeim skólum sem kennsla fer fram í.
Vortónleikar með hefðbundnu sniði og þátttöku/viðveru foreldra munu falla niður þar sem ekki verður hægt að viðhafa fjarlægðarregluna.
Smærri tónfundir með nemendahóp hvers kennara fyrir sig og án foreldra eru heimilir.
Huga ber vel að sóttvörnum líkt og áður með góðum handþvotti nemenda og kennara fyrir og eftir kennslustund sem og yfirborðsþrifum á snertiflötum og hljóðfærum.
Áfram verða sóttvarnarráðstafanir í skólum, sem og annars staðar, og skólar fylgja viðbragðsáætlunum sínum varðandi mögulegt smit. Neyðarstig almannavarna vegna COVID-19 er áfram í gildi.
Undirrituð þakkar nemendum og forráðamönnum kærlega fyrir umburðarlyndi á þessum erfiðu tímum og aðstoð við fjarkennslu í þeim tilvikum þar sem það hefur verið mögulegt. Ef spurningar vakna vinsamlegast hafið samband í síma 8622040.
Kær kveðja, Valgerður
Páskafrí og fjarkennsla!
Kæru nemendur og forráðamenn.
Samkvæmt skóladagatali er páskafrí í dymbilvikunni sem hefst á pálmasunnudegi 5. apríl. Fjarkennsla hefst aftur þriðjudaginn 14. apríl.
Við hvetjum forráðamenn nemenda sem ekki geta nýtt sér fjarkennslu til að syngja með börnum sínum, hlusta á tónlist, dansa, fara í klappleiki/hreyfileiki, leika af fingrum fram, skoða tónlistarforrit og fleira. Við minnum á aðgengilegt tónlistarefni sem finna má á heimasíðu Tónstofunar undir krækjunni Fræðsla: Áhugaverðir tenglar https://tonstofan.is/ahugaverdir-tenglar
Kennarar munu hafa samband við nemendahópa sína um leið og staðan breytist og hægt verður að hefja nándarkennslu á ný í Tónstofunni.
Með von um að allir séu við góða heilsu óska ég ykkur gleðilegra páska!
Valgerður
Umsókn um skólavist skólaárið 2020-2021
Umsókn um skólavist 2020-2021
Kæru nemendur og forráðamenn.
Undirbúningur fyrir skólaárið 2020-2021 er hafinn. Nauðsynlegt er að endurnýja umsókn árlega bæði í tónlistarskólanum sjálfum og hjá lögheimilissveitarfélagi nemandans.
Vakin er athygli á því að ef tónlistarskóli nemanda er utan lögheimilissveitarfélags, þarf staðfest samþykki lögheimilissveitarfélags að liggja fyrir áður en nemandi hefur eða heldur áfram námi í tónlistarskólanum. Því er brýnt að þeir sem ætla sér að halda áfram námi í Tónstofunni veturinn 2020-2021 láti skólann vita og sendi inn beiðni til lögheimilissveitarfélags þar að lútandi eins fljótt og mögulegt er (fyrir 15. apríl).
Sum sveitarfélög hafa þar til gert eyðublað/beiðni á heimasíðu sinni (nám í tónlistarskóla utan lögheimilissveitarfélags), sem nauðsynlegt er að fylla út og skila á viðkomandi skólaskrifstofu. Hægt er að nálgast umsóknareyðublað frá Tónstofunni (sjá tengilinn Innritun á heimasíðu) sem forráðamenn eru beðnir um að fylla út og skila til Tónstofunnar og lögheimilissveitarfélags (ef ekki er um annað eyðublað að ræða á skólaskrifstofunum).
Umsókn um skólavist fyrir næsta vetur er hvorki bindandi af hálfu umsækjanda né af hálfu skólans. Aðstæður nemenda sem og skólans breytast frá ári til árs, en á hverjum tíma er reynt að koma til móts við eins marga umsækjendur og mögulegt er.
Ef spurningar vakna vinsamlegast hafið samband við skólastjóra Tónstofunnar í síma 8622040 eða á netfanginu tonsvj@mmedia.is
Sjá tónlistarnám í Reykjavík - http://reykjavik.is/thjonusta/tonlistarnam-i-reykjavik
Electronic applications for enrollment in Music schools in Reykjavik for the school year 2020-2021 have begun. Enrolled students need also to renew their applications for next school year. Electronic application can be accessed through Reykjavík - www.rafraen.reykjavik.is
The school's secretary can also assist parents in their application process.
Students who live outside Reykjavík (suburbs) must also contact their local school administration offices and apply for support due to "nám utan lögheimilissveitarfélag".
If questions arise please contact Valgerður
Phone: 8622040
tonsvj@mmedia.is
Kær kveðja,
Valgerður Jónsdóttir